21.6.2007 | 13:13
Fiskifýla?
Fyrsta umferð var tefld í gærkvöldi og er óhætt að segja að skákirnar voru með fjörugra móti. Lítum á úrslitin:
Sævar Bjarnason tapaði snögglega fyrir Braga Þorfinnssyni. Byrjunin lofaði góðu fyrir mig en allt kom fyrir ekki, ég bjó til gryfju fyrir sjálfan mig að detta í! Og gafst upp um leið. Fýla var engin í mönnum, hvað þá fiskifýla, en ekki get ég sagt að ég hafi glaðst er tveir gamlir góðkunningjar gengu í salinn. Ég hélt þó ró minn þó mér væri heitt í hamsi, nýbúinn að komast að axarskafti mínu! Það er hægt að skemmta skrattanum margvíslega ..
Hjörvar Steinn Grétarsson vann skák sína gegn Birni Þorfinnssyni en hún hefði getað farið allavega. Björn átti gangandi þráskák en hafnaði henni. Það kom í ljós að margar vænlegar leiðir voru í boði fyrir Björn en hann sá þær ekki fyrr en eftir skákina. Það er ekki talið með eins og í mínu tilviki.
Omar Salama virtist vera að kafsigla Andrzej Misiuga. En Andrzej varðist af hörku og sóknin mikla dvínaði og þráskák var niðurstaðan.
Lenka Ptacnikova hinsvegar kafsigldiJorge Fonseca og er óhætt að segja að hún hélt vel á spilunum.
Ingvar Þór Jóhannesson náði litlu út úr byrjuninni gegn Walaa Sarwat . Eftir um 20 leiki náði Egyptinn smám saman yfirhöndinni og svo fór að Ingvar tapaði.
En lítum á lok endaleysu minnar á móti Braga, Ég hafði hvítt.
Ég lék hér 24. Bd3 en mun betra er 24. Dd3 Hc5 25. De3 Dxe3 26. fxe3 Hxg5 27. Hb7vog hvítur getur vonast eftir jöfnu tafli!
Nú eru góð ráð dýr! Ekkert varnar miklu liðstapi. Hótunin Dg1+ fylgt af Dd1+ og mát er ægileg.
Í dag bíður Egypskur alþjóðameistari, það gæti farið illa! Það gleður eflaust einhvern!
Það er hægt að skoða stöðumyndirnar betur með því að ýta á þær með músinni! Þá verða þær stórar og skýrar. Kemur sér vel fyrir þá sem djá illa. Svona smám saman á meðan ég er að þreifa mig áfram, þá er ljóst að gæði síðunnar fara aðeins batnandi útlitslega.
Flokkur: Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 15:28 | Facebook
Um bloggið
Sævar Bjarnason
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.